Bandrúnir eru rúnatákn sem samanstanda af tveimur eða fleiri rúnum. Rúnatáknið getur verið svo fjölbreytt, að heilu orði eða heilum formála var komið fyrir í einni stafsmynd. Hver rún hefur sína merkingu en nokkrar saman í rúnatákni öðlast þær meiri merkingu og mikinn kraft. Þegar rúnatákn er búið til verða til nokkrar faldar rúnir sem einnig hafa mikla þýðingu fyrir eigandann. Rúnatákn eru ýmist skrifuð áfram og afturábak og svo upp og niður og á hvolfi allt eftir hver skrifar.
Skemmtilegast er að gera rúnatákn úr nafninu sínu eða skammstöfuninni sinni, 2 til 4 stafir.
Hægt er að panta rúnatákn með því að senda mér stafina sem á að setja saman í rúnatákn á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Rúnatáknin eru sett á silfurplötur. Tvær stærðir eru af silfurplötunum, stórt ( eins og hálsmen með galdrastöfum ) sem er 24 mm í þvermál og 1,2 mm að þykkt og kostar kr. 3.100.- og lítið, (eins og hálsmen með rúnastaf) sem er um 10mm í þvermál og 1,2 mm að þykkt og kostar kr. 1.600.-
Dæmi um nokkur rúnatákn.
ÚD AMJ SÚ KAH MRH SDV
Íslenskir galdrastafir hafa verið venjulegar rúnir ásamt bandrúnum af ýmsum toga.
Share