Bandrúnir eru rúnatákn sem samanstanda af tveimur eða fleiri rúnum. Rúnatáknið getur verið svo fjölbreytt, að heilu orði eða heilum formála var komið fyrir í einni stafsmynd. Hver rún hefur sína merkingu en nokkrar saman í rúnatákni öðlast þær meiri merkingu og mikinn kraft. Þegar rúnatákn er búið til verða til nokkrar faldar rúnir sem einnig hafa mikla þýðingu fyrir eigandann. Rúnatákn eru ýmist skrifuð áfram og afturábak og svo upp og niður og á hvolfi allt eftir hver skrifar.
Skemmtilegast er að gera rúnatákn úr nafninu sínu eða skammstöfuninni sinni, 2 til 4 stafir.

